Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Tímalína

Helstu atburðir í ævi Jóns Árnasonar og í sögu þjóðsagnasöfnunar á Íslandi á 19. öld.

  • 17. ágúst 1819 Fæðingardagur Jóns Árnasonar. Jón Árnason fæddist 17. ágúst 1819 á Hofi á Skagaströnd. Hann var sonur séra Árna Illugasonar, sem var prestur þar frá 1796 til 1825, og þriðju konu hans, Steinunnar Ólafsdóttur. Árni lést þegar Jón var á sjöunda ári og Steinunn var eftir það lengi ráðskona á Syðri-Ey og Auðkúlu í Austur-Húnavatnssýslu.
  • 1838 Fjölnismenn. Fjölnismenn hvetja presta til að safna „almúgasögum“ og fornkvæðum.
  • 1839 Grimmsævintýri. Fyrsta prentaða þýðing á Grimmsævintýri birtist í bókinni Jólagjøf handa Børnum frá Jóhanni Haldórssyni, Studiosus juris.
  • 1843 Stúdentspróf. Jón var settur til mennta og lauk stúdentsprófi frá Bessastaðaskóla í maí 1843. Hann varð síðan heimiliskennari hjá Sveinbirni Egilssyni, síðar rektor skólans, á Eyvindarstöðum á Álftanesi og kenndi sonum hans undir skóla.
  • 1845 Söfnun alþýðlegra fornfræða. Árið 1845 tóku þeir Jón og Magnús Grímsson, sem þá var skólapiltur við Bessastaðaskóla, sig saman um að safna því sem þeir kölluðu alþýðleg fornfræði. Magnús átti að safna sögum en Jón kreddum, leikum, þulum, gátum og kvæðum.
  • 1847 Síðasta hefti Fjölnis. Síðasta hefti Fjölnis kemur út, tileinkað Jónasi Hallgrímssyni, m.a. með þýðingu hans á Grimmsævintýrinu „Maríubarnið“ og frumsömdum listævintýrum.
  • 1848–1887 Starf bókavarðar. Jón Árnason var bókavörður á árunum 1848-1887, fyrst á Stiftsbókasafninu en þegar safnið fékk titilinn Landsbókasafn Íslands árið 1881 varð hann fyrsti Landsbókavörður Íslands. Hann varð einnig fyrsti forstöðumaður Forngripasafns Íslands, sem síðar varð Þjóðminjasafn Íslands, þegar það var stofnað árið 1863.
  • 1852 Íslenzk æfintýri. Safn Jóns Árnasonar og Magnúsar Grímssonar með sögnum og kvæðum kom út árið 1852 undir titlinum Íslenzk ævintýri og varð fyrsta prentaða þjóðsagnasafnið sem út kom með íslenskum sögum. Útgáfan hlaut ekki góðar viðtökur og áhugaleysi landsmanna fyrir henni virðist að einhverju leyti hafa dregið kjark úr þeim félögum, en þegar Konrad Maurer kom til landsins 1858 hvatti hann þá til að halda söfnuninni áfram og lofaði að finna útgefanda að sögunum í Þýskalandi.
  • 1852 Mjallhvít. Þýðing Magnúsar Grímssonar á ævintýrinu af Mjallhvíti (Schneewittchen) kemur út.
  • 1853 „Karlinn frá Hringaríki og kerlingarnar þrjár“. Fyrsta prentaða þýðingin á sögu úr safni Asbjørnsens og Moes: „Karlinn frá Hringaríki og kerlingarnar þrjár“.
  • 1857 Um kvennbúnínga á Íslandi að fornu og nýju. Grein eftir Sigurð Guðmundsson málara í Ný Félagsrit um Íslenska kvenbúninga að fornu og nýju. (www.sigurdurmalari.hi.is)
  • 1858 Konrad Maurer. Konrad Maurer kemur til landsins 1858 og hvetur Jón Árnason og Magnús Grímsson til að halda söfnuninni áfram og lofaði að finna útgefanda að sögunum í Þýskalandi. Magnús Grímsson lést 1860, svo það kom í hlut Jóns Árnasonar að ljúka starfinu.
  • 1858 Sigurður Guðmundsson kemur heim frá Kaupmannahöfn.
  • 1859 Hugvekja um alþýðleg fornfræði. Hugvekja Jóns Árnasonar (undir nafni Jóns Borgfirðings) um alþýðlega fornfræði í Norðri (tbl. 13.-14., bls. 56).
  • 1860 Ísländische Volksagen der Gegenwart. Ísländische Volksagen der Gegenwart eftir Konrad Maurer.
  • 18. janúar 1860 Dánardagur Magnúsar Grímssonar. Magnús Grímsson lést 18. janúar 1860.
  • 1862–1864 Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri. Þjóðsagnasafnið sem ávallt er kennt við Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, kemur út í Leipzig í tveimur bindum árin 1862 og 1864.
  • 1862 Útilegumennirnir á svið. Leikritið Útilegumennirnir eftir Matthías Jochumsson sett á svið, leiktjöld eftir Sigurð Guðmundsson málara.
  • 1862 Hugvekja til Íslendinga. Hugvekja til Íslendinga eftir Sigurð Guðmundsson um þjóðleikhúsið.
  • 1864 Icelandic Legends. Icelandic Legends, þýðendur George E. J. Powell og Eiríkur Magnússon, kemur út á ensku.
  • 8. september 1874 Sigurður Guðmundsson deyr. Sigurður Guðmundsson málari deyr.
  • 4. september 1888 Dánardagur Jóns Árnasonar.